
Eydís Herborg Kristjánsdóttir, rithöfundur
Þessari heimasíðu er ætlað að kynna mig sem rithöfund, verkin mín og halda utan um þann ævintýraheim sem mér finnst svo gaman að skapa.
Um Eydísi H. Kristjánsdóttur
Sem barn var ég sveimhuga, upptekin af dagdraumum og með óbilandi sköpunarkraft. Mig dreymdi alltaf um að verða rithöfundur og í gegnum árin hef ég skrifað eitt og annað sem þó aldrei hefur litið dagsins ljós. Við fjölskyldan bjuggum í Danmörku í 14 ár og á tímabili tók ég við íslenskukennslunni í Álaborg. Þar skorti kennsluefni svo ég bjó til mitt eigið og þá kviknaði áhuginn aftur á skriftum. Stuttu seinna varð bókaflokkurinn um Emmu og ömmu hennar til en aðal sögupersóna bókanna, Emma, er byggð á samblandi af dóttur minni, Þórunni og svo bestu vinkonu hennar henni Emmu. Amman er svo byggð á mér sjálfri og því hvernig ég sé þetta hlutverk fyrir mér. Ég hef þó fleiri bækur í pokahorninu en bara um hana Emmu. Ég á hafsjó af sögum, smásögum og ljóðum sem bíða þess að fá byr undir báða vængi og fljúga í hendur fróðleiksfúsra lestrarhesta.
Hugsunin á bak við sköpunina
Lokaðu augunum og ímyndaðu þér töfrandi heim án allra hafta, heim þar sem allt er hægt! Heim þar sem ímyndunaraflið og ótæmandi sköpunarkraftur búa til endalaus ævintýri. Heim þar sem sama hvað, þá hefur þú valdið til þess að bregðast við aðstæðunum og skapa þín eigin ævintýri.
Barnabækurnar mínar hvetja lesendurna til að vera forvitna, nota ímyndunaraflið og virkja brosvöðvana. Bókunum er ætlað að byggja upp góðan orðaforða, fræða, og skapa umræður. Gerum lestur að notalegri samverustund!
"Skemmtum okkur vel saman ég og ömmu stelpan mín yfir þessari skemmtilegu og vel gerðu bók, innilegar hamingjuóskir"
Auður J. Stefánsdóttir
"Fullkomin fyrir þá sem eru að byrja að læra að lesa"
Malva Heed hjá Göteborg Bibliotek
Create Your Own Website With Webador