Skáldverkin mín
Hérna má sjá yfirlit yfir útgefið efni

Emma fer í útilegu um hávetur
Þegar Emma fer til ömmu gerast ótrúlegævintýri. Hugmyndabanki ömmu er nefnilega stærri en Atlantshafið. Í þetta sinn leggur amma til að fara í útilegu og grilla sykurpúða – en úti eru háir snjóskaflar! Þessi bók er heppileg til að æfa lestur, með stóru letri og góðu línubili.
- Þetta er fyrsta bókin í bókaflokknum um hana Emmu og ömmu hennar.
- Hún var valin af Amtsbókasafninu á Akureyri fyrir fyrstu lesstund ársins 2024.
- Bókin var ein af mest lesnu barnabókunum á bókasafninu á Egilsstöðum árið 2024.
- Þessi bók var einnig keypt af aðal bókasafni Gautaborgar og kynnt þar í ágústmánuði 2024 en íslenska var tungumán þess mánaðar.

Emma og rennireiðin
Þegar Emmu vantar eitthvað til þess að renna sér á í snjósköflunum kemur amma til bjargar og saman finna þær skemmtilega lausn. Í þetta sinn verður þvottabalinn hennar ömmu að ævintýralegri sleðaferð sem vekur upp mikla kátínu! Þessi bók er með stóru letri og góðu línubili og því heppileg til að æfa lestur.
- Þessi bók var valin fyrir fyrstu lesstund Amtsbókasafnsins árið 2025.

Emma og fýlupúkarnir
Gúgú amma og Emma eru í búðinni þegar þær finna allt í einu sterka prumpulykt. Þar er á ferð grænn fýlupúki sem felur sig í grænmetinu. Bækurnar um hana Emmu henta afskaplega vel til að æfa lestur. Þær eru með stóru letri og góðu línubili. Áður hafa komið út bækurnar Emma í útilegu um hávetur og Emma og rennireiðin.
- Þessi bók var valin fyrir fyrstu lesstund á Amtsbókasafninu á Akureyri árið 2026.
Create Your Own Website With Webador